Nú er Snæfellsnesið að verða búið og þá eru 2.285 staðir komnir á kortið sem þó eru aðeins um 25% allra staðanna. Þó verður að hafa það í huga að þessi prósentutala gefur ekki alveg rétta mynd, samanber þessa færslu.
Google kortið sem ég nota býður upp á að sjá fjölda punkta á ákveðnu svæði með því að skipta kortinu upp í reiti og telja punktana innan þeirra. Á myndinni hér fyrir neðan sést hvernig sögustaðir dreifast frá Norður-Þingeyjarsýslu vestur að Snæfellsnesi. Þegar búið verður að fara yfir alla sagnamenn og safnara í grunninum verður hægt að útbúa svipað kort sem mun þá sýna fjölda heimila þeirra.